07.09.26 - 11:24
Elvar Geir Magnússon
Belgíska fótboltasambandið krefst svara

Balogun fékk leikbanni aflétt eftir símtal frá Donald Trump.

Mynd: EPA

Gianni Infantino og Donald Trump.

Belgíska fótboltasambandið segist enn krefjast þess að fá svör við því hvers vegna Folarin Balogun fékk að spila með Bandaríkjunum gegn Belgíu á HM, og hefur beðið um að málið verði tekið fyrir á næsta fundi FIFA.
Þrátt fyrir að hafa fengið rautt spjald slapp Balogun við leikbann. Þetta var ákvörðun sem átti sér engin fordæmi og hlaut mikla gagnrýni. Ekki síst þar sem Donald Trump forseti Bandaríkjanna hafði áhrif á ákvörðunina.
Belgíska sambandið sættir sig ekki við það að málinu verði sópað undir teppið og hefur beðið FIFA um skýran rökstuðning fyrir þeim ákvörðunum sem teknar voru og upplýsingar um hvernig slíkum aðstæðum verður sinnt í framtíðinni.

TENGT EFNI
FIFA neitar að gefa frekari útskýringar
Balogun, sem hafði skorað þrjú mörk á HM, byrjaði í leiknum sem Belgía vann 4-1. Belgar töpuðu svo fyrir Spáni í 8-liða úrslitum.
Í yfirlýsingu segjast Belgar fara fram á að málið verði rætt á fundi FIFA 15. október og segjast ekki ætla að styðja framboð Gianni Infantino til endurkjörs sem forseti FIFA.
„Tveimur mánuðum eftir atburðina hefur okkar spurningum enn ekki verið svarað," segir Pascale van Damme, forseti belgíska sambandsins.
Balogun var annar leikmaðurinn í sögu HM sem gat spilað næsta leik á mótinu eftir að hafa fengið rautt spjald. Það hafa 189 rauð spjöld verið gefin í sögu heimsmeistaramótins og aðeins tveir leikmenn sloppið við bann.
Hinn leikmaðurinn er Garrincha hjá Brasilíu 1962 sem fékk rautt spjald gegn Síle í undanúrslitunum en spilaði í sigrinum gegn Tékkóslóvakíu í úrslitum. Þá var hinsvegar ekki sjálfkrafa leikbann, það var sérstök aganefnd sem gat dæmt leikmenn í bann eftir skýrslu dómara.