Fotbolti.net
07.09.26 - 08:15
Elvar Geir Magnússon

Chelsea vill tryggja sér Alex Scott

Alex Scott, leikmaður Bournemouth.

Alex Scott, leikmaður Bournemouth.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Svakaleg fótboltahelgi að baki og veislan heldur áfram því Meistaradeildin fer af stað í vikunni. Fáum okkur Powerade og skoðum helsta slúðrið.
Chelsea vill tryggja sér Alex Scott (23), miðjumann Bournemouth, sem er mjög eftirsóttur. 60 milljóna punda tilboði Chelsea var hafnað í nýafstöðnum félagaskiptaglugga en bláliðar vonast til að fá leikmanninn næsta sumar. (Teamtalk)

Arsenal, Manchester City og Al-Hilal hafa áhuga á kantmanninum Pedro Neto (26) frá Chelsea og gætu reynt að fá portúgalska landsliðsmanninn í janúarglugganum. (Caught Offside)

Bandaríski framherjinn Folarin Balogun (25) gæti farið til Sádi-Arabíu þar sem félagaskiptaglugginn er enn opinn. Mónakó er undir fjárhagslegum þrýstingi til að selja eftir að hann hætti við að skipta til Everton seint á lokadegi gluggans. (Football Insider)

Samningur Jacob Murphy hjá Newcastle United (31) rennur út næsta sumar en Englendingnum gæti verið boðinn nýr samningur hjá Tyneside-félaginu. (Football Insider)

Hakim Ziyech (33), fyrrum kantmaður Chelsea hefur yfirgefið marokkóska félagið Wydad og hefur verið orðaður við brasilíska liðið Botafogo. (Goal)

Enski miðjumaðurinn Curtis Jones (25) segir að samræður hans við Cristian Chivu, stjóra Inter Milan, hafi verið lykilatriði í því að hann fór frá Liverpool til ítalska félagsins í sumar. (Mirror)

Framherjinn Christopher Nkunku (28) hafnaði tilboðum frá Manchester United og Newcastle United áður en hann fór aftur frá Chelsea til RB Leipzig á láni. (Bild)
Pedro Neto.

Pedro Neto.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.