Fotbolti.net
07.09.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Dregið í Meistaradeild kvenna: Erfitt fyrir Glódísi og Thelmu

Dregið í Meistaradeild kvenna: Erfitt fyrir Glódísi og Thelmu
Canon

Mynd: EPA

Kvennaboltinn
Nokkur Íslendingalið taka þátt í Meistaradeild kvenna í vetur og er búið að draga í leiki liðanna í deildarkeppninni.
18 lið taka þátt í deildinni og komast fjögur efstu liðin beint áfram í 8-liða úrslit.

Liðin sem enda í 5.-12. sæti eigast við í umspilsleikjum um síðustu fjögur lausu sætin í 8-liða úrslitum.

Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í liði Þýskalandsmeistara FC Bayern fengu afar erfiðan drátt. Liðið á heimaleiki gegn Barcelona, Real Madrid og Manchester City og spilar á útivelli gegn Paris Saint-Germain, Benfica og Austria Wien.

Bayern er í fyrsta styrkleikaflokki en Thelma Karen Pálmadóttir, Fanney Inga Birkisdóttir og stöllur þeirra í BK Häcken eru í öðrum styrkleikaflokki eftir að hafa unnið Evrópubikarinn á síðustu leiktíð.

Hacken á gríðarlega erfiða leiki gegn tveimur félagsliðum frá Englandi, tveimur frá Ítalíu og tveimur frá Frakklandi. Sænska stórveldið tekur á móti Chelsea, Juventus og Manchester City og heimsækir Lyon, Paris FC og Inter.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir, Telma Ívarsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir eru allar á mála hjá Inter. Þær munu taka á móti ensku stórveldunum Arsenal og Man City auk Häcken ásamt því að heimsækja Lyon, Real Madrid og Austria til Vínarborgar.

Emelía Óskarsdóttir og stöllur í danska meistaraliðinu HB Köge fá nokkuð þægilegt leikjaprógram miðað við önnur Íslendingalið. Þær spila heimaleiki við Barcelona, Benfica og Servette og heimsækja Arsenal, Paris FC og OH Leuven.

Ljóst er að eini Íslendingaslagur deildarkeppninnar mun eiga sér stað þegar Inter og Häcken mætast.
Dregið í Meistaradeild kvenna: Erfitt fyrir Glódísi og Thelmu
Canon

Mynd: BK Häcken

Dregið í Meistaradeild kvenna: Erfitt fyrir Glódísi og Thelmu
Canon

Mynd: Inter

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.