07.09.26 - 10:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
FH stimplaði sig aftur í fallbaráttuna - „Ef þú ert stressaður og hræddur þá ertu ekki á réttum stað"

Úr leiknum í gær.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Jói Kalli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr leiknum í gær.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik
FH tapaði í gær sínum öðrum leik síðan í maí þegar liðið mætti Þór á Akureyri. FH byrjaði leikinn ágætlega en svo fjaraði undan gestunum og Þór vann að lokum verðskuldaðan sigur.
Eina tap FH síðan í maí hafði komið gegn toppliði Víkinga. Liðið hafði fengið 19 stig úr tólf leikjunum fyrir leik gærdagsins; fjórir sigrar, sjö jafntefli og eitt tap.

Þór jafnaði með sigrinum FH að stigum en FH er í 9. sæti með betri markatölu. Eftir úrslit gærdagsins er FH stigi frá fallsæti og þremur stigum frá botnsætinu.
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn.
„Við höfum ekki verið að spá neitt rosalega mikið í því hverjir eru að gera hvað. Við þurfum að fókusa á okkur. Auðvitað er svekkjandi að tapa á móti Þór, en við vitum alveg að þeir hafa verið að ná í góð úrslit hérna og við vissum að það yrði mjög erftt að koma hingað og ætla taka þessi þrjú stig - við myndum aldrei fá þau gefins. Þetta lið er gott með flottan þjálfara sem mótiverar sína menn vel."
„Það sem við erum að spá í áfram er frammistaðan sem hefur gefið okkur stig og kom okkur á þetta skrið."
Sverrir Páll Hjaltested var ekki með FH í gær en hann glímir við bakmeiðsli sem hafa haldið honum frá síðustu vikurnar. „Hann hefur ekki verið 100%."
Líturu á næstu fimm leiki sem úrslitaleiki?
„Klárt mál. En það er bara einn í einu. Það er sama baráttan framundan, við erum búnir að vera þarna niðri í langan tíma. Það sem fyllir mig gríðarlega miklu öryggi er hvað hópurinn er andlega sterkur og hvað það er mikil samheldni í hópnum. Við getum náð í fullt af sigrum og á okkar degi erum við ansi erfiðir að eiga við. Við erum alveg búnir það. Við ætlum að byggja á því inn í úrslitakeppnina."
Er eitthvað stress að þið gætuð fallið?
„Nei nei, alls ekki. Fótbolti er bara þannig að þegar þú ert í þessari baráttu þá geturu fallið. Ef þú ert eitthvað stressaður og hræddur við það þá ertu ekki á réttum stað. Þetta eru áskoranir. Við tökum á móti þessari áskorun, ekki fagnandi, en tökum almennilega á móti henni og erum sterkir andlega," sagði Jói Kalli.

Innkastið - KR hatar gras og Blikar bulla
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 22 | +46 | 53 |
| 2 | Fram | 22 | +14 | 45 |
| 3 | KR | 22 | +25 | 44 |
| 4 | Breiðablik | 22 | +2 | 30 |
| 5 | ÍA | 22 | -2 | 30 |
| 6 | Keflavík | 22 | -5 | 28 |
| 7 | Stjarnan | 22 | -8 | 28 |
| 8 | Valur | 22 | -6 | 27 |
| 9 | FH | 22 | -12 | 21 |
| 10 | Þór | 22 | -28 | 21 |
| 11 | KA | 22 | -13 | 20 |
| 12 | ÍBV | 22 | -13 | 18 |