Fotbolti.net
07.09.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

Ísland í dag - Blikar geta endurheimt toppsætið

Ísland í dag - Blikar geta endurheimt toppsætið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Það eru tveir leikir á dagskrá í íslenska boltanum í dag þegar titilbaráttulið Breiðabliks og fallbaráttulið Víkings R. mæta til leiks í Bestu deild kvenna.
Breiðablik heimsækir Þrótt R. og þarf sigur til að endurheimta toppsæti deildarinnar. Blikar hafa afar óvænt tapað síðustu tveimur leikjum sínum í röð og eru einu stigi á eftir toppliði FH, en með leik til góða.

Þróttur, sem spilar við Grindavík/Njarðvík í úrslitaleik Mjólkurbikarsins, siglir lygnan sjó í efri hlutanum með 22 stig.

Á sama tíma eigast Stjarnan og Víkingur R. við. Stjörnukonur sitja í fjórða sæti sem stendur og eru tíu stigum frá toppbaráttunni, á meðan Víkingar verma botnsæti deildarinnar.

Víkingur þarf því á sigri að halda í fallbaráttunni. Sigur í dag myndi koma liðinu úr botnsætinu fyrir tvískiptingu Bestu deildarinnar.

Leikir kvöldsins
19:15 Þróttur R.-Breiðablik (PEPSI völlurinn)
19:15 Stjarnan-Víkingur R. (Miðgarður)
Ísland í dag - Blikar geta endurheimt toppsætið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.