Fotbolti.net
07.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Kynning á göngufótbolta hjá Þrótti

Kynning á göngufótbolta hjá Þrótti
Canon

Mynd: EPA

Þróttur og ÍBR bjóða til kynningar á göngufótbolta á Sundavelli Þróttar í Laugardalnum (við hliðina á Laugardalsvelli) í dag klukkan 19:45.
Göngufótbolti er skemmtileg og holl hreyfing á rólegum nótum þar sem félagsskapurinn skiptir mestu máli.

Rúnar Már Sverrisson, umsjónarmaður göngufótboltans hjá Þrótti og fulltrúi í grasrótarnefnd KSÍ, leiðir kvöldið. Hann fer yfir helstu atriði, stýrir upphitun og skiptir í lið. Spilað er til klukkan 21:00.

Íþróttafélög í Reykjavík sem mæta til leiks eru beðin um að senda póst á [email protected] fyrir klukkan 16:00 til að hjálpa við undirbúning.

Göngufótbolti er sérstaklega tilvalinn fyrir:
Eldra fólk sem vill hreyfa sig og hafa gaman
Einstaklinga með fatlanir sem leita að aðgengilegu íþróttastarfi
Fólk í endurhæfingu eftir meiðsli
Afreksfólk með skaddaða liði sem getur ekki spilað hefðbundinn fótbolta
Vina- og vinnustaðahópa sem vilja hreyfa sig saman

Heimild: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.