Fotbolti.net
07.09.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Lið vikunnar í enska - Sjö frá Arsenal og Liverpool

Troy Deeney er búinn að velja lið vikunnar eftir þriðju umferð enska úrvalsdeildartímabilsins. Þar má finna fjóra leikmenn úr liði Arsenal og þrjá leikmenn Liverpool.
<b>Markvörður: David Raya (Arsenal)</b> - Besti markvörður deildarinnar. Á erfitt með að missa einbeitinguna þó það sé lítið að gera.

Markvörður: David Raya (Arsenal) - Besti markvörður deildarinnar. Á erfitt með að missa einbeitinguna þó það sé lítið að gera.

Canon

Mynd: EPA

<b>Varnarmaður: Ezri Konsa (Arsenal)</b> - Nýkominn til Englandsmeistaranna og strax búinn að stimpla sig inn með frábærri frammistöðu gegn erfiðum andstæðingum.

Varnarmaður: Ezri Konsa (Arsenal) - Nýkominn til Englandsmeistaranna og strax búinn að stimpla sig inn með frábærri frammistöðu gegn erfiðum andstæðingum.

Canon

Mynd: EPA

<b>Varnarmaður: Ronald Araújo (Liverpool)</b> - Frábær í sínum fyrsta byrjunarliðsleik með Liverpool. Leysti hægri bakvarðarstöðuna feyki vel af hólmi gegn nýliðunum.

Varnarmaður: Ronald Araújo (Liverpool) - Frábær í sínum fyrsta byrjunarliðsleik með Liverpool. Leysti hægri bakvarðarstöðuna feyki vel af hólmi gegn nýliðunum.

Canon

Mynd: EPA

<b>Varnarmaður: Tyrick Mitchell (Crystal Palace)</b> - Skoraði tvennu og var maður leiksins í Lundúnaslag gegn Fulham. Áreiðanlegur og stabíll vinstri bakvörður.

Varnarmaður: Tyrick Mitchell (Crystal Palace) - Skoraði tvennu og var maður leiksins í Lundúnaslag gegn Fulham. Áreiðanlegur og stabíll vinstri bakvörður.

Canon

Mynd: EPA

<b>Hægri vængur: Harvey Barnes (Newcastle)</b> - Hefur verið frábær á byrjun tímabils og skoraði gott mark gegn Bournemouth.

Hægri vængur: Harvey Barnes (Newcastle) - Hefur verið frábær á byrjun tímabils og skoraði gott mark gegn Bournemouth.

Canon

Mynd: EPA

<b>Miðjumaður: César Palacios (Fulham)</b> - Kemst í lið vikunnar þrátt fyrir tap gegn Crystal Palace. Vann skítavinnuna á miðjunni og skoraði.

Miðjumaður: César Palacios (Fulham) - Kemst í lið vikunnar þrátt fyrir tap gegn Crystal Palace. Vann skítavinnuna á miðjunni og skoraði.

Canon

Mynd: EPA

<b>Miðjumaður: Vitaly Janelt (Brentford)</b> - Lykilmaður aftarlega á miðjunni. Ekki vanur að skora mörk en gerði eina mark Brentford í jafntefli gegn Sunderland og er búinn að skora tvisvar í þremur fyrstu umferðum deildartímabilsins.

Miðjumaður: Vitaly Janelt (Brentford) - Lykilmaður aftarlega á miðjunni. Ekki vanur að skora mörk en gerði eina mark Brentford í jafntefli gegn Sunderland og er búinn að skora tvisvar í þremur fyrstu umferðum deildartímabilsins.

Canon

Mynd: EPA

<b>Vinstri vængur: Cody Gakpo (Liverpool)</b> - Búinn að vera stórkostlegur á upphafi tímabils og lagði bæði mörkin upp í sigri gegn Ipswich á föstudaginn. Liverpool hafnaði mikilvægum tilboðum í Gakpo í sumarglugganum.

Vinstri vængur: Cody Gakpo (Liverpool) - Búinn að vera stórkostlegur á upphafi tímabils og lagði bæði mörkin upp í sigri gegn Ipswich á föstudaginn. Liverpool hafnaði mikilvægum tilboðum í Gakpo í sumarglugganum.

Canon

Mynd: EPA

<b>Sóknartengiliður: Martin Ödegaard (Arsenal)</b> - Fyrirliði Englandsmeistaranna hefur byrjað nýtt tímabil af miklum krafti. Var líflegur gegn Chelsea og skoraði sigurmarkið í upphafi síðari hálfleiks.

Sóknartengiliður: Martin Ödegaard (Arsenal) - Fyrirliði Englandsmeistaranna hefur byrjað nýtt tímabil af miklum krafti. Var líflegur gegn Chelsea og skoraði sigurmarkið í upphafi síðari hálfleiks.

Canon

Mynd: EPA

<b>Sóknarmaður: Kai Havertz (Arsenal)</b> - Sýndi afar glæsilegar hreyfingar án boltans. Skoraði fyrsta markið eftir að hafa klúðrað góðu færi skömmu fyrr og átti svo stóran þátt í sigurmarkinu með frábærri gabbhreyfingu.

Sóknarmaður: Kai Havertz (Arsenal) - Sýndi afar glæsilegar hreyfingar án boltans. Skoraði fyrsta markið eftir að hafa klúðrað góðu færi skömmu fyrr og átti svo stóran þátt í sigurmarkinu með frábærri gabbhreyfingu.

Canon

Mynd: EPA

<b>Sóknarmaður: Alexander Isak (Liverpool)</b> - Að hrökkva í gang eftir hrikalega erfið meiðsli? Setti tvennu gegn Ipswich.

Sóknarmaður: Alexander Isak (Liverpool) - Að hrökkva í gang eftir hrikalega erfið meiðsli? Setti tvennu gegn Ipswich.

Canon

Mynd: EPA

<b>Þjálfari: David Moyes (Everton)</b> - Missti sóknarmennina sína í lélegum glugga en nær samt í úrslit.

Þjálfari: David Moyes (Everton) - Missti sóknarmennina sína í lélegum glugga en nær samt í úrslit.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.