07.09.26 - 10:39
Elvar Geir Magnússon
Markvarðaþjálfarinn að kveðja Val - Hvernig verður teymið hjá Dóra Árna?

Emil Larsen kveður Val í október.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halldór Árnason fylgist með kappleik í Mosfellsbæ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Emil Larsen kveður Val í október.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danski markvarðaþjálfarinn Emil Larsen hefur tilkynnt að hann muni láta af störfum hjá Val eftir tímabilið.
Larsen gerði eins árs samning við Hlíðarendafélagið síðasta vetur en hann þjálfaði áður hja yngri liðum Lyngby í heimalandinu. Hann segist reynslunni ríkari eftir tímann á Íslandi og að hann sé farinn að skoða næstu skref á ferli sínum.

TENGT EFNI
Innkastið - KR hatar gras og Blikar bulla
Þetta hefur verið erfitt tímabil fyrir Val sem endaði í áttunda sæti Bestu deildarinnar fyrir tvískiptingu og leikur því í neðri hlutanum.
Fyrr á tímabilinu var Hermann Hreiðarsson rekinn frá Val og aðstoðarmaður hans, Chris Brazell, tók við sem bráðabirgðaþjálfari út tímabilið.
Halldór Árnason mun svo taka við Val eftir tímabilið og fróðlegt verður að sjá hvernig teymið í kringum hann verður. Háværar sögusagnir eru um að Brazell muni láta af störfum hjá Val og einnig muni Gareth Owen, sem er yfirmaður fótboltamála, yfirgefa félagið.