07.09.26 - 09:01
Innkastið
„Myndi skammast mín fyrir að kalla eftir broti þarna“

Mikael Breki Þórðarson skoraði sigurmark KA.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, sagði í viðtali eftir 2-1 tapið gegn KA í gær að hann hefði viljað fá dæmda aukaspyrnu í aðdragandanum að sigurmarki Akureyrarliðsins.
Farið var yfir atvikið í Innkastinu sem tekið var upp í gær.

„Þetta er aldrei aukaspyrna, Gabríel stígur á boltann og Djuric bara hirðir boltann af honum. Ekki í nokkrum einasta kappleik er þetta brot," segir Elvar Geir en Danijel Djuric vann boltann af Gabríel Snæ Hallssyni.
„Ánægður með Djuric þarna, hann var bara harður. Það er nákvæmlega ekkert í þessu. Ég myndi skammast mín fyrir að kalla eftir broti þarna," segir Kári Snorrason.
„Við höfum allir lent í því að sjá hlutina öðruvísi í rauntíma, ef þú ert þjálfari liðs sem er að ströggla svona mikið eins og Breiðablik vertu þá búinn að skoða þetta aftur áður en þú segi þetta í viðtali eftir leik. Mér finnst veikleikamerki að vera að benda á eitthvað svona. Þetta var aldrei brot á Djuric," segir Valur Gunnarsson.
„Ég held að það séu fáir leikmenn sem byggjast jafnmikið upp á sjálfstrausti og Djuric. Hann vinnur boltann af harðfylgi og býr til mark, þetta gerir helling fyrir hann," segir Kári.
Það var kraftur í Danijel Djuric í leiknum en hann var þó mjög nálægt því að vera skúrkur í leiknum, eins og fjallað var um í Innkastinu.
Sjáðu sigurmark KA: