Fotbolti.net
07.09.26 - 14:43
Elvar Geir Magnússon

Ndiaye: Þú segir ekki nei þegar Man City hringir

Iliman Ndiaye fagnaði sigri í sínum fyrsta leik með City.

Iliman Ndiaye fagnaði sigri í sínum fyrsta leik með City.

Canon

Mynd: EPA

Manchester City keypti hinn 26 ára gamla Iliman Ndiaye frá Everton á gluggadeginum og hann fór beint inn í byrjunarliðið í 1-0 sigrinum gegn Coventry um helgina.

Ndiaye virtist vera á leið til Tottenham í lok gluggans en ekkert varð úr því þar sem Spurs mistókst að selja Richarlison.
England: Man City með fullt hús - Tottenham getur ekki skorað
TENGT EFNI

England: Man City með fullt hús - Tottenham getur ekki skorað

„Það var ekkert stress eða örvænting. Ég segi alltaf að það gerist sem gerist, guð ákveður framtíðina og hún er þegar skrifuð. Ég sýndi bara þolinmæði og þegar City kom inn í myndina þá iðaði ég. Þá kom ekkert annað til greina," segir Ndiaye.

„Ég vildi fara í Meistaradeildina og spila fyrir eitt besta lið heims. Ég er ekki að tala niður Tottenham en þegar Manchester City hefur samband þá segir maður ekki nei. Þetta var góð vika og gott að ljúka henni með sigri."

Ndiaye var í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Everton sem kunnu að meta leikni hans og nef fyrir mörkum á kantinum.

„Ég sagði við eiginkonu mína að ef ég þyrfti að yfirgefa Everton þá vildi ég fara í Meistaradeildina. Það var erfitt að kveðja Everton, ég tengdi vel við stuðningsmennina og samherja mína. En svona er fótboltinn. Ég hef lagt hart á mig til að komast hingað og hér á ég heima."
Ndiaye: Þú segir ekki nei þegar Man City hringir
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City6+1118
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Brentford6+610
5Everton6+310
6Chelsea6+210
7Leeds6+39
8Hull City6+29
9Liverpool609
10Ipswich Town6-39
11Newcastle6-38
12Crystal Palace6-37
13Man Utd606
14Coventry6-66
15Nott. Forest6-35
16Aston Villa6-55
17Sunderland6-64
18Bournemouth6-63
19Tottenham6-63
20Fulham6-42
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.