Fotbolti.net
07.09.26 - 14:52
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Stjarnan og Valur í neðri hlutanum í fyrsta sinn

Stjarnan og Valur í neðri hlutanum í fyrsta sinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Tímabilið hjá Val og Stjörnunni hefur verið mikil vonbrigði. Í gær varð ljóst að bæði lið verða í neðri hlutanum í Bestu deildinni og er það í fyrsta sinn frá því að deildinni sem skipt er í efri og neðri hluta sem liðin eru í neðri hlutanum. Fyrst var deildinni skipt upp í efri og neðri hluta árið 2022.

Stjarnan var síðast neðar en í 6. sæti árið 2021 og þar á undan árið 2010. Stjörnunni var spáð 3. sæti hér á Fótbolti.net fyrir mót.
Innkastið - KR hatar gras og Blikar bulla
TENGT EFNI

Innkastið - KR hatar gras og Blikar bulla

Valur er í fyrsta sinn neðar en í 6. sæti síðan 2019 og þar á undan gerðist það árið 2012. Val var spáð 6. sætinu fyrir mót.

Það eru lið Fram og Keflavíkur sem hafa komið spámönnum mest á óvart. Fram, sem situr eins og stendur í 2. sæti, var spáð 8. sæti og Keflavík, sem er í 6. sæti, var spáð 12. sætinu.

Stjarnan er átta stigum fyrir ofan fallsæti þegar fimm umferðir eru eftir og Valur er sjö stigum fyrir ofan fallsæti.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.