Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 07. október 2019 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Higuain: Alltaf klár í að koma inná og hjálpa liðinu
Gonzalo HIguain skoraði sigurmark Juventus
Gonzalo HIguain skoraði sigurmark Juventus
Mynd: Getty Images
Gonzalo HIguain, framherji Juventus á Ítalíu, var í skýjunum eftir 2-1 sigur á Inter í ítölsku deildinni í gær.

Higuain gerði sigurmark Juventus tíu mínútum fyrir leikslok eftir sendingu frá Rodrigo Bentancur. Þetta var annað mark hans í Seríu A á leiktíðinni en hann er samtals með 3 mörk í 8 leikjum í öllum keppnum.

„Þjálfarinn ákveður liðið. Paulo hafði verið að gera mjög vel síðustu vikur þannig ég skildi það að hann byrjaði. Það sem ég get gert er að vera tilbúinn að hjálpa liðinu þegar ég kem inná og ég gat gert það í gær," sagði Higuain.
Athugasemdir
banner
banner
banner