Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 07. október 2019 12:45
Elvar Geir Magnússon
Liepaja, Lettlandi
Líklegt byrjunarlið Íslands gegn Lettlandi
Icelandair
Dagný Brynjarsdóttir.
Dagný Brynjarsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lettland og Ísland eigast við í undankeppni EM kvenna á morgun. Leikurin verður klukkan 17 að íslenskum tíma, 20 að staðartíma.

Lettar töpuðu fyrir Slóvakíu á dögunum og eru án stiga eftir tvær umferðir. Íslenska liðið hefur unnið báða leiki sína og krafan á okkar stelpur eru að skila þriðja sigrinum í hús.

Fótbolti.net spáir því að Jón Þór Hauksson landsliðsþjálfari geri eina breytingu frá tapinu í vináttuleiknum gegn Frökkum á föstudaginn.

Dagný Brynjarsdóttir kemur væntanlega inn í liðið en hún mun spila með grímu eftir að hafa nefbrotnað eftir olnbogaskot í leik með Portland Thorns.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner