Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 07. október 2020 09:00
Victor Pálsson
Braithwaite fær níuna á Nou Camp
Mynd: Getty Images
Framherjinn Martin Braithwaite hefur fengið númer níu hjá Barcelona eftir brottför Úrúgvæans Luis Suarez til Atletico Madrid.

Suarez skrifaði nýlega undir samning við Atletico sem borgaði fimm milljónir evra fyrir hans þjónustu.

Suarez notaði lengi níuna á Nou Camp en hún fer nú til Braithwaite sem kom til Barcelona fyrr á þessu ári frá Leganes.

Braithwaite er alls ekki fyrsti maður á blað í Barcelona en hann hefur til þessa leikið 11 deildarleiki og skorað í þeim eitt mark.

Danski landsliðsmaðurinn var áður á mála hjá Middlesbrough en er uppalinn hjá Esbjerg í heimalandinu.

Braithwaite klæddist treyju númer 19 áður en Suarez kvaddi félagið.
Athugasemdir
banner
banner