Annað kvöld klukkan 18:45 mætast Ísland og Armenía í undankeppni HM en miðasala á leikinn fer illa af stað.
Það eru ýmsar ástæður sem liggja að baki því; döpur stigasöfnun í riðlinum, íslenska haustveðrið, neikvæð umræða í tengslum við liðið og sitthvað fleira.
Eins og veðurspáin er núna á að rigna í fyrri hálfleik en svo lægja og stytta upp, spáð er tíu gráðu hita.
Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, hvetur fótboltaáhugafólk til að styðja liðið og mæta á völlinn en hún var í hlaðvarpsviðtali við Fótbolta.net sem kom inn í dag.

KSÍ brá á það ráð að senda aðildarfélögum sínum tölvupóst í dag og bauð afslátt af miðum á næstu tvo leiki, leik Íslands og Armeníu og síðan á leik Íslands og Liechtenstein sem fram fer á mánudagskvöld.
Miðasala er í gegnum Tix.is.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir