Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 07. október 2021 23:40
Victor Pálsson
Nkoulou samdi við Watford (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Watford hefur samið við varnarmanninn Nicolas Nkoulou en hann kemur til félagsins á frjálsri sölu.

Um er að ræða 31 árs gamlan Kamerúna sem hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Torino á Ítalíu í sumar.

Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Claudio Ranieri fær til Watford en hann var ráðinn nýr stjóri liðsins á dögunum.

Nkoulou býr yfir töluverðri reynslu og hefur spilað með liðum eins og Monaco, Marseille og Lyon í Frakklandi.

Nkoulou hefur spilað á tveimur heimsmeistaramótum og á að baki 75 landsleiki fyrir Kamerún.
Athugasemdir
banner
banner
banner