Fotbolti.net
07.12.19 - 11:38
Ívan Guðjón Baldursson

Byrjunarlið Everton og Chelsea: Gylfi og félagar blása til sóknar

Byrjunarlið Everton og Chelsea: Gylfi og félagar blása til sóknar
Canon

Mynd: Getty Images

Everton tekur á móti Chelsea í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Gylfi Þór Sigurðsson er í byrjunarliði Everton og ber fyrirliðabandið.
Þetta er fyrsti leikur Everton án Marco Silva á tímabilinu en hann var rekinn eftir 5-2 tap gegn Liverpool í vikunni. Duncan Ferguson stýrir Everton í dag.

Hann gerir tvær breytingar á liðinu sem tapaði gegn Liverpool. Theo Walcott og Morgan Schneiderlin koma inn fyrir Tom Davies og Yerry Mina.

Ferguson teflir fram afar sóknarsinnuðu liði þar sem pláss er fyrir Alex Iwobi, Richarlison, Theo Walcott, Dominic Calvert-Lewin og Gylfa Þór.

Frank Lampard gerir ekki neina breytingu á liðinu sem lagði Aston Villa að velli í miðri viku.

Chelsea getur jafnað Manchester City á stigum í þriðja sæti með sigri. Everton getur komið sér úr fallsæti með stigi.

Everton: Pickford, Sidibe, Keane, Holgate, Digne, Schneiderlin, Sigurðsson, Iwobi, Richarlison, Walcott, Calvert-Lewin
Varamenn: Stekelenburg, Baines, Niasse, Davies, Bernard, Tosun, Kean

Chelsea: Kepa, James, Zouma, Christensen, Azpilicueta, Kante, Kovacic, Mount, Willian, Pulisic, Abraham
Varamenn: Caballero, Tomori, Emerson, Jorginho, Barkley, Hudson-Odoi, Batshuayi

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.