Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 07. desember 2019 17:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp: Þetta er sérstakur hópur
Jurgen Klopp.
Jurgen Klopp.
Mynd: Getty Images
„Þetta var fagmannleg frammistaða, við stjórnuðum leiknum og skoruðum stórkostleg mörk. Við vildum ekki gera þetta spennandi," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, eftir 3-0 sigur á Bournemouth á útivelli.

„Það sem er mest talað um í búningsklefanum núna er að við héldum hreinu - loksins!"

Þetta var næstum fullkominn leikur að mati Klopp.

„Dejan Lovren fékk vonandi bara krampa, fyrir utan það að hann þurfti að fara út af, þá var þetta fullkominn leikur. Þetta var næstum því fullkominn dagur."

Liverpool hefur unnið alla deildarleiki sína nema einn - jafntefli gegn Manchester United. Liverpool er á toppnum með 46 stig af 48 mögulegum.

„Þetta snýst ekki um að vera stöðugt spennandi, þetta snýst um að gera réttu hlutina. Það voru ekki mörg erfið augnablik þar sem við þurftum að verjast, sem er gott."

Þá sagði Klopp: „Þetta er sérstakur hópur."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner