Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 07. desember 2021 19:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Danskur markvarðarþjálfari til ÍBV (Staðfest)
Mikkel Hasling.
Mikkel Hasling.
Mynd: Vefsíða ÍBV
ÍBV hefur ráðið danskan markvarðarþjálfara til starfa hjá félaginu. Hann heitir Mikkel Hasling og starfaði síðast hjá Lyngby þar sem Freyr Alexandersson er núna þjálfari.

Hasling hefur víða komið við sem þjálfari og leikmaður. Sem leikmaður spilaði hann í Danmörku og Noregi með fjölda félaga.

Hlutverk Mikkel verður að þjálfa markmenn meistaraflokka ÍBV, sjá um afreksstefnu markmanna og aðstoða markmannsþjálfara yngri flokka.

„ÍBV bindur miklar vonir við Mikkel og hans störf og býður hann hjartanlega velkominn til Eyja!" segir í tilkynningu frá Vestmannaeyjum.

Bæði karla- og kvennalið ÍBV munu næsta sumar leika í efstu deild.
Athugasemdir
banner