Víkingur 1-1 Stjarnan
0-1 Henrik Máni Hilmarsson ('60 )
1-1 Helgi Guðjónsson ('82 )
Rautt spjald: Jóhannes Geirdal
Víkingur og Stjarnan áttust við í Bose bikarnum í B riðli á Víkingsvelli í kvöld.
Matthías VIlhjálmsson lék sinn fyrsta leik í búningi Víkings frá því hann kom til liðsins frá FH en hann var í byrjunarliðinu í kvöld.
Jóhannes Geirdal sem er fæddur árið 2004 var í byrjunarliði Víkings en hann fékk að líta rauða spjaldið á 40. mínútu. Staðan var markalaus í hálfleik.
Henrik Máni Hilmarsson kom Garðbæingum yfir eftir klukkutíma leik en Helgi Guðjónsson bjargaði stigi fyrir heimamenn með marki undir lok leiksins.
Næsti leikur mótsins fer fram á morgun en það er viðureign Breiðabliks og KR í A-riðli.
Athugasemdir