Harry Maguire, miðvörður Manchester United, verður ekki með liðinu sem fær Norwich í heimsókn um helgina í ensku úrvalsdeildinni.
Maguire var ekki í leikmannahópi United í gær en United tapaði gegn Manchester City í enska deildabikarnum í gærkvöldi.
Maguire var ekki í leikmannahópi United í gær en United tapaði gegn Manchester City í enska deildabikarnum í gærkvöldi.
Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, hefur staðfest að Maguire verður ekki með á laugardag.
Solskjær segir þó meiðslin ekki alvarleg svo möguleiki er á að hann nái leiknum gegn Wolves sem fram fer í næstu viku.
Phil Jones lék með Victor Lindelöf í hjarta varnarinnar í gærkvöldi.
Athugasemdir