Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 08. janúar 2020 23:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndband: Fred kætti stuðningsmenn United
Fred eltir Mahrez.
Fred eltir Mahrez.
Mynd: Getty Images
Það gekk ekki mikið upp hjá Manchester United í gærkvöldi þegar liðið tapaði gegn Manchester City, 1-3, á heimavelli í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum enska deildabikarsins.

City-liðið óð yfir heimamenn í United á tuttugu mínútna kafla í fyrri hállfleik.

Marcus Rashford lagaði stöðu heimamanna fyrir seinni leikinn, sem fram fer 29. janúar, með marki á 70. mínútu.

Það var þó atvik sem gladdi marga stuðningsmenn Manchester United í gær. Riyad Mahrez var tekinn af velli hjá City og ætlaði Fred ekki að leyfa Mahrez að eyða of miklum tíma í að tefja leikinn með hægagangi sínum við það að yfirgefa leikvöllinn.

Fred reyndi að ýta Mahrez yfir hliðarlínuna en þá greip Mike Dean, dómari leiksins, inn í og benti Fred á að stíga til hliðar og leiðbeindi sjálfur Mahrez af vellinum. Myndband af þessu má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner