08.01.21 - 13:00
Magnús Már Einarsson
Sepp Blatter á sjúkrahúsi

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sepp Blatter, fyrrum forseti FIFA, dvelur á sjúkrahúsi þessa stundina eftir að hafa veikst alvarlega.
Hinn 84 ára gamli Blatter er þó ekki í lífshættu að sögn Corinne Blatter Andenmatten, dóttur hans.
<i>„Faðir minn er á sjúkrahúsi. Hann er að verða betri með hverjum degi en hann þarf tíma til að hvílast,"</I> sagði Corinne.

„Fyrir hönd fjölskyldu minnar þá vil ég biðja um frið."
Blatter var forseti FIFA frá 1998-2015 en hann var dæmdur í átta ára bann frá fótbolta árið 2016 eftir spillingarmál.