Fotbolti.net
15.10.26 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson

Liverpool hafi þurft á þessu að halda - „Það er smá áhyggjuefni“

Bradley Barcola setti þrennu

Bradley Barcola setti þrennu

Canon

Mynd: EPA

Liverpool skoraði sex mörk gegn LASK Linz í Meistaradeildinni í gær og segir Jamie Carragher, fyrrum leikmaður félagsins, að þetta hafi verið nákvæmlega það sem liðið þurfti eftir erfiða byrjun á tímabilinu.
Iraola: Kannski var það samt ekki besta ákvörðunin
TENGT EFNI

Iraola: Kannski var það samt ekki besta ákvörðunin

Það hefur verið þungt yfir Liverpool í upphafi tímabilsins. Varnarleikurinn hefur að mestu verið ágætur en sóknarlega hefur liðið átt erfitt með að finna taktinn og tengingin á milli leikmanna ekki alveg verið til staðar.

Liverpool hefur vissulega skorað mörk en ekki skapað sér mikið af góðum færum. Carragher benti á að liðið væri neðst í ensku úrvalsdeildinni þegar kemur að sköpuðum dauðafærum og hefur hann nokkrar áhyggjur af stöðunni.

Hann telur því að þrenna Bradley Barcola gegn LASK í Meistaradeildinni hafi verið gríðarlega mikilvæg, bæði fyrir Liverpool og Frakkann sjálfan sem hafði ekki enn skorað fyrir félagið.

„Liverpool þurfti ekki bara að vinna þennan leik heldur líka að skora nokkur mörk. Undanfarið hefur áherslan verið á að þétta varnarleikinn og það fór aðeins úr skorðum í þessum leik, en það var mjög mikilvægt að Barcola ætti góðan leik.“

„Hann var ein af stóru stjörnum félagaskiptagluggans og stærstu kaup Liverpool í sumar. Byrjunin hefur verið erfið hjá honum, en það sama má segja um sóknarleik Liverpool í heild sinni.“

„Það er ekki eins og Liverpool hafi ekkert skorað eða verið að klúðra fullt af færum. Vandamálið er að þeir eru einfaldlega ekki að skapa sér nógu mikið. Ég held að þeir séu neðstir í ensku úrvalsdeildinni þegar kemur að sköpuðum dauðafærum og það er auðvitað áhyggjuefni.“

„En þetta var frábært hjá Barcola. Hann fór hægt af stað og hafði aðeins spilað fjóra eða fimm leiki án þess að skora eða leggja upp mark. Hann hafði heldur aldrei skorað meira en eitt mark í sama Meistaradeildarleiknum, en svo fer hann í Liverpool-treyjuna og skorar þrennu!“
sagði Englendingurinn í settinu á CBS.

Liverpool vann leikinn 6-3 og hefur liðið unnið báða leiki sína í Meistaradeildinni á tímabilinu.


Liverpool hafi þurft á þessu að halda - „Það er smá áhyggjuefni“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.