Watkins orðaður við United - Bayern sýnir Díaz áhuga - Arsenal hefur rætt við Eze
   lau 08. janúar 2022 07:00
Victor Pálsson
Velur Noble frekar en Fabregas
Mark Noble er besti fyrirliði sem Jack Wilshere hefur spilað með en hann greinir sjálfur frá þessu í viðtali við TalkSport.

Wilshere hefur unnið með mörgum virtum leikmönnum á sínum ferli og var Cesc Fabregas hans fyrirliði um tíma í Arsenal.

Wilshere er án félags í dag en hann lék í stutta stund með West Ham þar sem Noble var og er með fyrirliðabandið.

„Ég myndi segja að hann sé besti fyrirliði sem ég hef haft," sagði Wilshere í samtali við TalkSport.

„Hann var öðruvísi en Cesc. Cesc var örugglega besti leikmaður sem ég spilaði með en jafnvel í dag þá tek ég upp símann og hringi í Nobes. Ég ræði við hann og bið um ráð. Hann er eins og stóri bróðir minn."

„Hann er vinur allra, hann ræðir við alla sem eru til staðar og þá meina ég alla, líka starfsfólkið á æfingasvæðinu."
Athugasemdir
banner