Það gengur illa hjá Liverpool og Cody Gakpo, sem keyptur var í upphafi janúargluggans, er ekki að finna sig. Þessi 23 ára sóknarleikmaður skoraði þrjú mörk í fimm leikjum fyrir Holland í Katar.
Hann hefur hinsvegar ekki náð að skora í þeim sex leikjum sem hann hefur spilað fyrir Liverpool síðan hann kom frá PSV Eindhoven.
Ronald Koeman landsliðsþjáfari Hollands segir að Gakpo gæti hafa farið of snemma til Liverpool.

„Hann endaði hjá liði sem gengur ekki mjög vel. Ef þú skorar ekki eða ert ekki mikilvægur og vinnur ekki leiki þá er þetta erfitt. Sérstaklega fyrir unga leikmenn. Kannski fór hann of snemma til Liverpool," segir Koeman.
„Ef þetta væri reyndari leikmaður, kannski 28 ára, þá væri þetta öðruvísi. Enska deildin er mun betri en sú hollenska."
Athugasemdir