Fotbolti.net
18.09.26 - 19:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Siggi Höskulds: Stórfurðulegt að hann var ekki valinn

Lykilmaður í liði Þórs og verið einn besti maður liðsins á tímabilinu.

Lykilmaður í liði Þórs og verið einn besti maður liðsins á tímabilinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Þórsarinn Einar Freyr Halldórsson, sem varð 18 ára fyrr í vikunni, hefur átt mjög gott fyrsta tímabil í efstu deild.

Einar er mjög efnilegur leikmaður sem erlend félög eru með augastað á og líkur á að þetta verði hans eina tímabil í Bestu deildinni.

Hann er fastamaður í yngri landsliðunum og einhverjir bjuggust við því að miðjumaðurinn fengi kallið í komandi leiki U21 landsliðið fyrir komandi leiki í undankeppni EM. Einn af þeim er þjálfari hans hjá Þór, Sigurður Heiðar Höskuldsson.
Þeir geta verið hvað svekktastir með val dagsins
TENGT EFNI

Þeir geta verið hvað svekktastir með val dagsins

„Mér finnst stórfuðulegt að hann sé ekki valinn í U21 landsliðið. Ég renndi yfir listann af leikmönnum í hópnum og fannst nafnið hans augljóslega eiga að vera á þeim lista miðað við spilamennskuna í sumar," segir Siggi.

Einar hefur skorað tvö mörk og lagt upp fjögur á tímabilinu. Hann á að baki 27 leiki fyrir yngri landslið Íslands og var fyrirliði U19 í sumar. Hann verður í eldlínunni annað kvöld þegar Þór mætir KA í nágrannaslag í Bestu deildinni.

U21 á fyrir höndum stóra leiki gegn Frakklandi, Sviss og Færeyjum í undankeppni EM.
Í leik með U17 landsliðinu fyrir tveimur árum.

Í leik með U17 landsliðinu fyrir tveimur árum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landslið karla - U21 - Undankeppni EM

#LiðLmunStig
1Frakkland10+2526
2Ísland10+1118
3Sviss10+117
4Færeyjar10-912
5Lúxemborg10-910
6Eistland10-192
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.