Fotbolti.net
19.09.26 - 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hinrik Harðar spáir í 2. umferð Bestu eftir skiptingu

Hinrik Harðarson.

Hinrik Harðarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Spámaður
Brynjar Bergsson, leikmaður Selfoss, gerði sér lítið fyrir og var með fimm rétta þegar hann spáði í síðustu umferð Bestu deildarinnar.

Næsta umferð hefst í dag með tveimur stórleikjum. Hinrik Harðarson, leikmaður Egersund í Noregi, spáir í leikina sem framundan eru.
Efri hluti
KR 1 - 2 Víkingur (14:00 í dag)
Víkingar klára dæmið og fagna í Vesturbænum, Ármann Ingi skorar seinna mark Víkings og á síðan 69 inni eftir leik. Ekki jafn mikil ára í marki KR eftir að Halldór Snær var settur á bekkinn.

ÍA 2 - 2 Breiðablik (16:00 á morgun)
Mínir menn upp á Skaga hljóta ætla að klára mótið með sæmd, vera faglegir. Blikarnir komnir með þann stóra og allir ligeglad.

Keflavík 1 - 3 Fram (16:00 á morgun)
Keflavík er komið með hausinn á lokahófið, það er ljóst. Eftir að Breki Baxter yfirgaf skútuna þá hefur botninn farið úr tertunni. Fram virðast einnig vera með hausinn við Tene. Fram taka þennan 1-3.

Neðri hluti
Þór 0 - 0 KA (19:30 í kvöld)
Síðustu leikir þessara liða hafa verið hrikalega leiðinlegir. Sé litla breytingu á því, sérstaklega út frá því hversu mikið er undir. Þórsarar taka stigið sáttir og hjóla heim.

FH 2 - 0 Stjarnan (16:00 á morgun)
Stjarnan hefur átt í erfiðleikum í Krikanum eftir leikinn 2014. 2-0 fyrir FH, hreint lak hjá frænda í markinu. Oliver skorar fyrra mark FH.

ÍBV 1 - 3 Valur (16:00 á morgun)
Brazell's Army eru byrjaðir að tikka. Linta er að panikka, eftir að hann henti Marcel Zaputowski af eyjunni eins og hverri annarri skítugri kúkableyju hafa þeir ekki haldið hreinu.

Fyrri spámenn:
Brynjar Bergsson (5 réttir)
Damir Muminovic (4 réttir)
Elmar Kári (4 réttir)
Ragnar Bragi (4 réttir)
Gísli Gotti (4 réttir)
Gummi Tyrfings (3 réttir)
Óðinn Bjarka (3 réttir)
Tómas Óli (3 réttir)
Daníel Freyr (3 réttir)
Tómas Guðmunds (3 réttir)
Júlíus Mar (3 réttir)
Stefán Þór (3 réttir)
Ágúst Brynjars (3 réttir)
Siggi Raggi (3 réttir)
Stefán Páls (2 réttir)
Karl Ágúst (2 réttir)
Mattías Kjeld (2 réttir)
Viðar Örn (2 réttir)
Helga Rut (2 réttir)
Birkir Már (2 réttir)
Kári Sigfússon (2 réttir)
Siggi Hall (1 réttur)
Bjartur Bjarmi (0 réttir)
Hinrik spáir því að Víkingur verði Íslandsmeistari í dag.

Hinrik spáir því að Víkingur verði Íslandsmeistari í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór og KA eigast við í kvöld.

Þór og KA eigast við í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Hinrik spáir FH sigri gegn Stjörnunni.

Hinrik spáir FH sigri gegn Stjörnunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.23+4956
2KR23+2947
3Fram23+1245
4Breiðablik23+433
5ÍA23-630
6Keflavík23-828
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.