Fotbolti.net
UTAN VALLAR: Peningarnir sem eru undir í úrslitaleik umspilsins í Lengjudeildinni

19.09.26

UTAN VALLAR: Peningarnir sem eru undir í úrslitaleik umspilsins í Lengjudeildinni

SÆVAR ÞÓR SVEINSSON

Fyrir tímabilið í Lengjudeild karla árið 2023 var gerð breyting á fyrirkomulagi deildarinnar. Áður voru það tvö efstu liðin í stigatöflunni í lok tímabils sem fóru upp í efstu deild karla. Eftir breytingarnar voru það ennþá Lengjudeildarmeistararnir sem fóru upp um deild en hinum farmiðanum er útbýtt til þess liðs sem ber sigur úr býtum í fjögurra liða umspili milli 2.-5. sætis. Úrslitaleikurinn í umspilinu, sem fer fram á Laugardalsvelli seinna í dag, hefur fengið viðurnefnið 50 milljón króna leikurinn af fjölmiðlum síðustu árin. Í vikunni hefur því einnig verið fleytt fram að um sé að ræða 100 milljón króna leik. Þetta er allt saman tilvísun í þá fjárhæð sem talið er að félag fái í sinn hlut fyrir það að spila í efstu deild samanborið við næstefstu deild. Í þessari grein verður rýnt betur í þessar tölur og hvort þær séu réttmætar.

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.