Norðmaðurinn John Arne Riise, sem varð Evrópumeistari á sínum tíma með Liverpool, lenti í óhugnalegu bílslysi í heimalandi sínu.
Hann var með dóttur sinni í bíl og þurfti bifreiðin að sveigja út af veginum til að koma í veg fyrir að lenda á öðrum bíl.
Keyrt var utan í vegrið en sem betur fer sluppu Riise og Ariana dóttir hans með lítilsháttar meiðsli. Þau voru flutt í skoðun á sjúkrahúsi en síðan útskrifuð í morgun.

Riise lék með Liverpool 2001-2008 en er nú búsettur í Álasundi. Hann lagði skóna á hilluna 2017.
Athugasemdir