Luis Suarez, sóknarmaður Barcelona, er mikið til í að Lautaro Martínez, sóknarmaður Inter, verði samherji sinn.
„Hann er 'nía' með frábærar hreyfingar. Hann er magnaður leikmaður sem hefur vaxið mikið í ítalska boltanum," segir Suarez.
Barcelona vill fá Lautaro til að verða arftaki Suarez hjá félaginu og Úrúgvæinn er ekkert ósáttur.

„Maður á ekki að líta á leikmanninn sem andstæðing, félagið þitt vill fá leikmann sem getur hjálpað okkur að ná okkar markmiðum. Markmiðin eru að vinna."
„Heilbrigð samkeppni verður alltaf til staðar og við róum allir í sömu átt. Leikmenn sem eru tilbúnir að berjast fyrir sæti sínu og aðstoða liðið eru alltaf velkomnir."
Athugasemdir