Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 08. apríl 2021 15:07
Magnús Már Einarsson
Man Utd vill nýta Lingard sem hluta af kaupverði fyrir Rice
Declan Rice.
Declan Rice.
Mynd: Getty Images
Manchester United vill fá Declan Rice í sínar raðir frá West Ham í sumar en The Athletic greinir frá þessu í dag.

Samkvæmt frétt The Athletic hefur Manchester United hug á að láta Jesse Lingard fara til West Ham sem hluti af kaupverðinu.

Lingard fór til West Ham á láni í janúar og hefur skorað sex mörk með Hömrunum síðan þá.

West Ham vill halda Lingard áfram hjá sér og Manchester United telur að það geti hjálpað til í viðræðunum um kaup á Rice.

Hinn 22 ára gamli Rice var maður leiksins í tveimur landsleikjum í röð undir lok síðasta mánaðar en í landsliðsverkefninu var umræða meðal leikmanna um að Rice sé á leið til Manchester United í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner