Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. apríl 2021 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Markvörður kvennaliðs Real varð fyrir barðinu á tröllum
Mynd: Getty Images
Misa Rodriguez, markvörður kvennaliðs Real Madrid, fagnaði sigri karlanna gegn Liverpool í Meistaradeild Evrópu fyrr í vikunni með tísti sem fékk mikla athygli frá bitrum stuðningsmönnum Liverpool.

Rodriguez birti færsluna og varð skömmu síðar fyrir flóði af móðgunum frá stuðningsmönnum Liverpool sem gerðu lítið úr henni fyrir það eitt að vera kona.

Rodriguez neyddist því til að eyða færslunni út en í kjölfarið mættu karlarnir henni til stuðnings.

Leikmenn á borð við Casemiro, Marcelo og Vinicius Jr birtu tíst henni til stuðnings sem segir 'Sama ástríða'. Þar er verið að vinna að því að brúa bilið milli knattspyrnuheima karla og kvenna.
Athugasemdir
banner
banner
banner