Fotbolti.net
08.05.13 - 15:51
Magnús Már Einarsson

ÍBV fær enskan framherja á láni (Staðfest)

ÍBV fær enskan framherja á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Eyjamenn.com

ÍBV hefur fengið framherjann Lateef Elford-Alliyu á láni frá enska félaginu Crawley.

Lánssamningurinn gildir í einn mánuð en þetta kemur fram á eyjamenn.com.

Hinn tvítugi Elford-Alliyu skrifar undir samninginn með möguleika á framlengingu.
Elford-Alliyu er uppalinn hjá WBA en hann lék sex leiki með Crawley þegar liðið endaði í sjötta sæti í ensku C-deildinni á nýliðnu tímabili. Hann lék á sínum tíma með U17 ára landsliði Englendinga.

Elford-Alliyu er mættur til Íslands en hann gæti spilað sinn fyrsta leik með ÍBV gegn Breiðabliki á sunnudag

Heimild: Eyjamenn.com

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.