Fotbolti.net
08.05.13 - 18:16
Elvar Geir Magnússon

Þorvaldur Sveinn og Axel Ingi í Gróttu (Staðfest)

Þorvaldur Sveinn í leik með Víkingi R.

Þorvaldur Sveinn í leik með Víkingi R.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Grótta hefur styrkt sig fyrir komandi átök í 2. deildinni en liðinu er spáð fimmta sæti deildarinnar í ár.

Þorvaldur Sveinn Sveinsson, fæddur 1988, er fjölhæfur varnar- og miðjumaður sem kemur frá Víkingi Reykjavík en hann hefur leikið fyrir Víkinga allan sinn feril.
Í fyrra lék hann tólf leiki með Víkingi í 1. deildinni.

,,Það er frábært að fá Þorvald í okkar raðir. Hann er þekktur fyrir vinnusemi og dugnað inni á vellinum og mun vafalaust koma vel inn í þann góða hóp sem hefur verið að byggjast upp og styrkjast í vetur og vor,\" sagði Hilmar Sigurðsson formaður knattspyrnudeildar við heimasíðu Gróttu.

Þá er jafnaldri hans, Axel Ingi Magnússon, einnig kominn með félagaskipti í Gróttu. Axel hefur síðustu ár verið í herbúðum Hamars í Hveragerði og þar áður lék hann fyrir Aftureldingu og Víði í Garði.

Axel er uppalinn hjá Fylki.

Heimild: Heimasíða Gróttu

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.