Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 08. maí 2021 19:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjáðu vítaspyrnuna: Aguero með mislukkaða panenka spyrnu
Mynd: EPA
Sergio Aguero ætlaði að vera mjög svalur og vippa af vítapunktinum undir lok fyrri hálfleiks þegar hann stóð á móti Edouard Mendy. Aguero var í byrjunarliði City gegn Chelsea og tók vítaspyrnu í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Aguero tók panenka spyrnu sem mislukkaðist illa. Mendy ætlaði af stað til hægri en sá nægilega snemma í hvað stemmdi og greip vippuna.

Slíkt lítur aldrei vel út og var Pep Guardiola, stjóri City, spurður út í þessa tilraun í viðtali eftir leik.

„Ég segi við alla að taka ákvarðanir og þetta var hans ákvörðun."

Chelsea vann 1-2 endurkomusigur og fór upp í 3. sæti deildarinnar.

Sjáðu vítaspyrnuna hér
Athugasemdir
banner
banner