Fotbolti.net
09.09.26 - 13:18
Elvar Geir Magnússon

Ívar Orri og ÞÞÞ dæma bikarúrslitaleikina

Ívar Orri Kristjánsson var klæddur í Preston treyju á treyjudögum.

Ívar Orri Kristjánsson var klæddur í Preston treyju á treyjudögum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Búið er að opinbera hverjir dæma úrslitaleiki Mjólkurbikarsins um helgina.

Ívar Orri Kristjánsson mun dæma úrslitaleikinn í karlaflokki, milli Aftureldingar og Breiðabliks á föstudagskvöld. Þórður Þorsteinsson Þórðarsson dæmir úrslitaleik Þróttar og Grindavíkur/Njarðvíkur í kvennaflokki á laugardag.
Ívar Orri er að fara að dæma sinn annan bikarúrslitaleik í karlaflokki en hann dæmdi úrslitaleik Víkings og FH, sem Víkingur vann 3-2, árið 2022.

Birkir Sigurðarson og Gylfi Már Sigurðsson verða aðstoðardómarar á úrslitaleik karla, varadómari er Gunnar Oddur Hafliðason, varaaðstoðardómari er Guðmundur Ingi Bjarnason, eftirlitsmaður dómara Oddur Helgi Guðmundsson og eftirlitsmaður leiks er Haraldur V. Haraldsson.

Kvennamegin eru það Ragnar Þór Bender og Antoníus Bjarki Halldórsson sem verða aðstoðardómar, fjórði dómari er Stefán Ragnar Guðlaugsson varaaðstoðardómari er Tijana Kristic, eftirlitsmaður dómara Sigurður Hannesson og eftirlitsmaður leiksins er Bryndís Sigurðardóttir.
ÞÞÞ dæmir úrslitaleikinn í kvennaflokki.

ÞÞÞ dæmir úrslitaleikinn í kvennaflokki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.