Fotbolti.net
09.09.26 - 13:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Tveir sem verða 100% ekki með Blikum

Andri Yeoman og aðstoðarþjálfarinn Emil Pálsson.

Andri Yeoman og aðstoðarþjálfarinn Emil Pálsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Þeir Andri Rafn Yeoman (1992) og Valgeir Valgeirsson (2002) verða ekki með Breiðabliki þegar liðið mætir Aftureldingu í bikarúrslitaleiknum á föstudag.

Frá þessu greinir Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, í viðtali við Fótbolta.net í dag.

Valgeir hefur verið fjarri góðu gamni frá því í maí og verður líklega ekki meira með á tímabilinu. Andri, sem er leikjahæsti leikmaður í sögu Breiðabliks, hefur ekki spilað síðan í lok júlí og var síðast í hóp 9. ágúst.
Sex bikarmeistarar hjá Blikum og tveir hjá Aftureldingu
TENGT EFNI

Sex bikarmeistarar hjá Blikum og tveir hjá Aftureldingu

„Staðan er ágæt, ég hugsa að á akkúrat þessum tímapunkti séum við eins vel staddir meiðslalega og við höfum verið. Valgeir og Andri eru meiddir til lengri tíma, en aðrir eru nokkuð sprækir," segir Ólafur Ingi.

Andri varð bikarmeistari með Breiðabliki árið 2009 og er hann einn af sex mönnum í leikmannahópnum sem lyft hefur bikarnum.

Leikurinn hefst klukkan 19:00 og fer fram á Laugardalsvelli.
Valgeir spilaði síðast í byrjun maí.

Valgeir spilaði síðast í byrjun maí.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óli Skúla: Held að það hjálpi okkur mikið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.