Fotbolti.net
09.09.26 - 13:07
Elvar Geir Magnússon

Messi kaupir félag á Alicante

Messi kaupir félag á Alicante
Canon

Mynd: EPA

Lionel Messi hefur komist að samkomulagi um kaup á meirihluta í spænska B-deildarfélaginu Eldense sem er á Alicante svæðinu.

Eldense er annað spænska félagið sem Messi kaupir hlut í en hann á hlut í katalónska félaginu UE Cornella sem er í spænsku E-deildinni.
Messi kaupir spænskt félag
TENGT EFNI

Messi kaupir spænskt félag

Eldense er með tvö stig eftir fjóra leiki í La Liga 2 á þessu tímabili og var þjálfarinn Claudio Barragan látinn taka pokann sinn á dögunum. Félagið leikur á Estadio Municipal Nuevo Pepico Amat sem tekur tæplega 6 þúsund áhorfendur.

Messi, sem er 39 ára, lagði landsliðsskóna á hilluna á dögunum en heldur áfram að spila fyrir Inter Miami í Bandaríkjunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.