Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
Davíð Smári: Miklar tilfinningar að keyra inn í bæinn
Birnir Snær: Reynir mest á hausinn
Arnór Ingvi: Allt á uppleið í KR og í Vesturbænum
Óskar Hrafn: Ber mikla virðingu fyrir körfu- og handboltaliðum
Hemmi: Ég er grautfúll
Gylfi: Mjög góðir þó að staðan hjá þeim er eins og hún er
Sölvi: Þarf að setja meiri pressu á Kára
Jökull: Stuðningsmennirnir eiga meira skilið
   fös 08. maí 2026 23:30
Elvar Geir Magnússon
Heimir óánægður með viðbrögð síns liðs: Fannst við aldrei reyna
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Njarðvíkingar unnu 2-0 heimasigur gegn Fylki í stórleik umferðarinnar í Lengjudeildinni. Þetta var fyrsti sigur Njarðvíkinga sem eru með fjögur stig að loknum þremur umferðum.

Fylkismenn höfðu unnið fyrstu tvo leiki sína í mótinu.

Lestu um leikinn: Njarðvík 2 -  0 Fylkir

„Leikurinn var í jafnvægi en svo var Birkir rekinn af velli, sem ég held að hafi verið hárréttur dómur. Það sem olli mér vonbrigðum var hvernig við brugðumst við. Þú getur alltaf lent í því að maður sé rekinn af velli en menn hættu að vilja fá boltann og það var lítil hreyfing. Mér fannst við aldrei reyna, því miður," segir Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis.

Fylkir missti mann af velli á 26. mínútu þegar Birkir Eyþórsson fékk rauða spjaldið en þá var staðan markalaus.

„Þegar það kemur mótlæti þá þurfa menn að vera tilbúnir að takast á við það, mér fannst það ekki vera þannig í kvöld."
Slapp
banner