Vinicius Jr orðaður við Man City - Bayern vill Gordon - Arsenal, Liverpool og Barcelona hafa áhuga á Barcola
   fös 08. maí 2026 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Markús Páll spáir í 3. umferð Lengjudeildarinnar
Markús Páll Ellertsson.
Markús Páll Ellertsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þriðja umferð Lengjudeildar karla fer af stað með þremur leikjum í kvöld. Svo eru þrír aðrir leikir á morgun.

Markus Páll Ellertsson, sem hefur farið af stað með krafti hjá ÍA í Bestu deildinni, spáir í leikina að þessu sinni.

Leiknir R. 3 - 0 Afturelding (19:15 í kvöld)
BBB masterclass.

Njarðvík 0 - 1 Fylkir (19:15 í kvöld)
Tæpur leikur en Fylkir endar með því að taka þetta.

ÍR 3 - 1 Grindavík (20:00 í kvöld)
Verður þægilegur sigur fyrir ÍR-ingana.

Ægir 0 - 3 Grótta (14:00 á morgun)
Jafnt í fyrri hálfleik en Grótta tekur yfir í seinni.

Vestri 1 - 2 HK (14:00 á morgun)
Bæði lið fá rautt spjald en HK skorar seint í leiknum og tryggir sér sigurinn.

Völsungur 0 - 5 Þróttur R. (14:00 á morgun)
Gríski maður leiksins og þægilegur sigur.

Fyrri spámenn:
Halli Hróðmars (2 réttir)
Dagur Orri (2 réttir)
Slapp
banner
banner