Fotbolti.net
08.06.19 - 16:13
Kristófer Jónsson

Jóhann Berg: Ekki alltaf fallegt í fótbolta

Auglýsing
Jóhann Berg fagnar marki sínu í dag

Jóhann Berg fagnar marki sínu í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Jóhann Berg Guðmundsson skoraði eina mark leiksins þegar að Ísland sigraði Albaníu á Laugardalsvelli í dag. Hægt er að sjá markið á vefsíðu RÚV hérna.

„Það var markmið okkar að ná í þessi þrjú stig í dag. Þetta var kannski ekkert fallegt en það er það ekki alltaf í fótbolta." sagði Jói Berg eftir leikinn.
Leikurinn var frekar lokaður og var lítið um opin marktækifæri en vörn Íslands stóð vaktina vel.

„Auðvitað er maður ekkert rólegur í stöðunni 1-0 en mér fannst þeir ekkert vera að skapa sér nein svaka færi. Nokkrar fyrirgjafir en Hannes þurfti ekkert að gera mikið í dag."

Jóhann Berg var valinn maður leiksins af Fótbolta.net í dag en hann þurfti að fara af velli snemma í seinni hálfleik. Hann hefur verið að glíma við meiðsli undanfarið og var ekki tilbúinn í 90 mínútur í dag.

„Ég er ekki í nógu góðu standi sem að er frekar þreytt. En ég byrjaði þennan leik í dag og náði að spila 55 mínútur og vonandi næ ég einhverju svipuðu á þriðjudaginn (gegn Tyrklandi). En auðvitað væri maður til í að vera í betra standi." hafði Jóhann Berg um málið að segja.

Nánar er rætt við Jóhann Berg í spilaranum að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.