Ætlar að taka sér ársfrí frá landsliðinu - „Þjóðadeildin er ekki mjög mikilvæg keppni“

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Thibaut Courtois, markvörður belgíska landsliðsins, gæti hafa spilað sinn síðasta leik í landsliðstreyjunni.

TENGT EFNI
Courtois: Leið eins og ég gæti spilað áfram
Courtois hefur varið mark Belga frá árinu 2011 og farið með þeim á mörg stórmót.
Hann fór meiddur af velli gegn Spáni í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í gær og gæti það hafa verið hans síðasti landsleikur.
Ástæðan er sú að Courtois vill taka sér ársfrí frá landsliðinu og snúa síðan aftur fyrir undankeppni Evrópumótsins.
„Ég væri til í að sleppa Þjóðadeildinni, enda er hún ekki mjög mikilvæg keppni, og snúa síðan kannski aftur fyrir undankeppni Evrópumótsins.“
„En á endanum er þetta ákvörðun sem fótboltasambandið þarf að taka. Ef það verður ekki samþykkt, þá var þetta líklega síðasti landsleikurinn minn,“ sagði Courtois.