Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mið 08. júní 2022 10:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Forster til Tottenham (Staðfest)
Mynd: EPA
Tottenham er búið að ganga frá því að Fraser Forster gangi í raðir félagsins á frjáslri sölu. Forster, sem er 34 ára, kemur frá Southampton og skrifar undir tveggja ára samning.

Markmaðurinn hefur spilað 134 leiki í úrvalsdeildinni og haldið hreinu 42 sinnum. Hann kom til Southampton frá Celtic árið 2014.

Forster lék á sínum tíma sex landsleiki fyrir England og var í lokahópum landsliðsins á HM 2014 og EM 2016.

Forster mun fylla í skarð Ítalans Pierluigi Gollini sem varamarkvörður fyrirliðans Hugo Lloris. Gollini snýr aftur til Atalanta eftir eins árs lánssamning en hann er orðaður við félagaskipti til Fiorentina.


Athugasemdir
banner
banner