Fotbolti.net
08.06.22 - 08:00
Elvar Geir Magnússon

Mane með sigurmark á 98. mínútu

Sadio Mane.

Sadio Mane.

Canon

Mynd: EPA

Afríkumeistarar Senegal fara vel af stað í undankeppni Afríkukeppninnar og í gær vann liðið 1-0 sigur á Rúanda þar sem Sadio Mane, leikmaður Liverpool, skoraði eina markið úr vítaspyrnu á 98. mínútu.

Þetta er í annað sinn á árinu sem Mane skorar sigurmark í landsleik af vítapunktinum djúpt í uppbótartímanum en hann tryggði sigur á 97. mínútu gegn Simbabve í opnunarleik Afríkukeppninnar. Þá skoraði hann sigurmarkið í úrslitaleiknum í vítaspyrnukeppni.

Senegal hefur unnið fyrstu tvo leiki sína í undankeppni Afríkukeppninnar en Mane skoraði þrennu gegn Benín um helgina.
Úrslit gærdagsins í undankeppni Afríkukeppninnar:
Esvatíní - Búrkína Fasó 1-3
Grænhöfðaeyjar - Tógó 2-0
Sambía - Kómoreyjar 2-1
Rúanda - Senegal 0-1
Miðbaugs-Gínea - Líbía 2-0
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.