Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 08. júní 2026 16:22
Kári Snorrason
Hraustur Eriksen gefur út yfirlýsingu - „Öðruvísi tilfelli en 2021“
Frá leiknum í gær.
Frá leiknum í gær.
Mynd: EPA
Christian Eriksen hneig niður í vináttulandsleik Danmerkur gegn Úkraínu í gær og var leik hætt eftir 65 mínútur. Eriksen, sem er 34 ára, komst fljótt til meðvitundar og gat gengið af velli.

Eriksen fékk hjartastopp í landsleik 2021 og þá var græddur í hann bjargráður. Átta mánuðum eftir hjartastoppið fór hann að leika að nýju með Brentford og gekk síðan í raðir Manchester United.

Daninn hefur nú gefið út yfirlýsingu þar sem hann segir hafa það gott og er staddur heima hjá sér í faðmi fjölskyldunnar.

Hann segir atvikið hafa verið mikið áfall fyrir hann og fjölskylduna sína en segir þó þetta vera allt annað tilvik en það sem gerðist árið 2021.

Eriksen segir bjargráðinn hafa gert nákvæmlega það sem til var ætlast af því í gær. En bjargráðurinn er hannaður til að grípa inn í með rafstuði þegar hjartsláttur fer úr skorðum.

Eftir atvikið í gær telja margir að ferli Eriksen sé lokið, en hann sagði í yfirlýsingunni áherslu sína vera á að verja tíma með fjölskyldunni og að spila fótbolta með börnunum sínum.



Slapp
banner