Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 08. júlí 2020 15:30
Magnús Már Einarsson
Guardiola ákveður framtíð Stones eftir tímabilið
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, hefur gefið vísbendingar um að John Stones gæti verið á förum í sumar.

Stones hefur ekki byrjað leik í ensku úrvalsdeildinni síðan í janúar en meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá honum.

Stones verður í byrjunarliðinu gegn Everton í kvöld en Guadiola segir að framtíð hans skýrist eftir tímabilið.

„Við ræðum um félagaskiptamarkaðinn eftir tímabilið," sagði Guardiola.

„Ég hef sagt þetta oft áður. Ég er meira en ánægður með John sem persónu, atvinnumann og allt. Ég vil það sem er best fyrir hann. Við tölum saman eftir tímabilið um hvað gerist."
Athugasemdir
banner
banner
banner