Pep Guardiola, stjóri Manchester City, hrósaði David Silva og liðsfélögum hans fyrir frábæra frammistöðu í 5-0 sigrinum á Newcastle United í kvöld en liðið er aðeins einu stigi frá því að tryggja þáttökurétt í Meistaradeild Evrópu.
David Silva skoraði úr aukaspyrnu og lagði einnig upp tvö mörk í leiknum en hann mun yfirgefa félagið eftir þessa leiktíð.
Lærisveinar Guardiola hikstuðu í síðustu umferð er liðið tapaði fyrir Southampton, 1-0, en það gekk þó allt upp í kvöld. Liðið er áfram í 2. sæti með 69 stig og einu stigi frá því að tryggja Meistaradeildarsæti.
„Við höfum spilað mjög vel í öllum leikjunum en því miður höfum við tapað stigum. Frammistöðurnar eru í heildina mjög góðar," sagði Guardiola.
Eins og hefur áður komið fram þá mun Silva klára tímabilið með City og yfirgefa svo félagið en hann er óneitanlega einn besti leikmaðurinn í sögu félagsins.
„David Silva er mikill keppnismaður og spilar í litlu svæðunum. Hann er frabær leikmaður og spilaði virkilega vel," sagði Guardiola um Silva.
„Við reynum alltaf að skora mörg mörk, með fullri virðingu fyrir mótherjunum. Það er gott að skora aftur fimm mörk og erum núna einu stigi frá því að tryggja sæti í Meistaradeildinni
„Við söknum þess að hafa stuðningsmennina hér. Þetta er ekki sama tilfinning. Þegar vírusinn fer að veikjast og það er óhætt að mæta aftur, þá sameinum við krafta okkar," sagði hann í lokin.
Athugasemdir