Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 08. júlí 2020 21:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjudeildin: Rosalegur Suðurnesjaslagur - Þróttur án stiga
Lengjudeildin
Áhorfendur fengu mikið fyrir peninginn í Grindavík.
Áhorfendur fengu mikið fyrir peninginn í Grindavík.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Daniel Garcia Blanco tryggði Leikni Fáskrúðsfirði sigur.
Daniel Garcia Blanco tryggði Leikni Fáskrúðsfirði sigur.
Mynd: Leiknir F.
Hann var rosalegur Suðurnesjaslagurinn þegar Grindavíkk fékk Keflavík í heimsókn í Lengjudeild karla á þessu miðvikudagskvöldi.

Joey Gibbs kom Keflvíkingum eftir tveggja mínútna leik. Sigurður Bjartur Hallsson jafnaði fyrir Grindavík á tíundu mínútu, en fjórum mínútum síðar kom Davíð Snær Jóhannsson gestunum aftur yfir. Staðan var ekki lengi jöfn því fimm mínútum eftir mark Davíð skoraði Sigurður Bjartur annað mark sitt og jafnaði.

Oddur Ingi Bjarnason kom Grindavík yfir á 22. mínútu og varnarmaðurinn Josip Zeba skoraði fjórða mark Grindavíkur á 25. mínútu. Ótrúleg fyrstu 25 mínúturnar í Grindavík. „Þetta er eins og handboltaleikur," skrifaði Sverrir Örn Einarsson sem hafði nógu að snúast í beinni textalýsingu frá leiknum.

Helgi Þór Jónsson minnkaði muninn fyrir Keflavík fyrir leikhlé og var staðan í hálfleik hvorki meira né minna en 4-3 fyrir Grindavík.

Seinni hálfleikurinn var heldur rólegri. Grindavík virtist lengi vel ætla að sigla sigrinum heim, en á 84. mínútu skoraði Joey Gibbs og jafnaði fyrir Keflavík í 4-4. Þar við sat. Algerlega ótrúlegur leikur og frábær skemmtun.

Í Fjarðabyggðarhöllinni var aðeins minni skemmtun þar sem Leiknir vann 1-0 sigur á lánlausum Þrótturum. Spánverjinn Daniel Garcia Blanco skoraði sigurmarkið þegar rúmar 20 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Leiknismenn eru komnir með sex stig úr fjórum leikjum. Á meðan eru Þróttarar stigalausir ásamt Magna. Ekki sú byrjun sem fólk í Laugardalnum hafði vonast eftir.

Grindavík 4 - 4 Keflavík
0-1 Josep Arthur Gibbs ('2 )
1-1 Sigurður Bjartur Hallsson ('10 )
1-2 Davíð Snær Jóhannsson ('14 )
2-2 Sigurður Bjartur Hallsson ('19 )
3-2 Oddur Ingi Bjarnason ('22 )
4-2 Josip Zeba ('25 )
4-3 Helgi Þór Jónsson ('38 )
4-4 Josep Arthur Gibbs ('84 )
Lestu nánar um leikinn

Leiknir F. 1 - 0 Þróttur R.
1-0 Daniel Garcia Blanco ('68)
Lestu nánar um leikinn

Önnur úrslit:
Lengjudeildin: Fyrsta tap Þórs kom gegn Vestra á heimavelli
Athugasemdir
banner
banner
banner