Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. júlí 2021 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Tonali til AC Milan (Staðfest)
Mynd: Getty Images
AC Milan er búið að staðfesta komu Sandro Tonali til félagsins. Miðjumaðurinn efnilegi lék 37 leiki sem lánsmaður hjá Milan á síðustu leiktíð.

Milan borgar í heildina 35 milljónir fyrir Tonali með lánsgreiðslum og öðrum aukagreiðslum.

Tonali er 21 árs gamall og hreif ekki sérlega mikið á sínu fyrsta tímabili í Mílanó. Hann átti þó gott tímabil 2019-20 þegar Brescia féll úr efstu deild og vakti verðskuldaða athygli á sér.

Ítalskir fjölmiðlar halda því fram að Milan vilji skipta Tonali við Sassuolo til að krækja í Manuel Locatelli, fyrrum leikmann Milan sem er með ítalska landsliðinu á EM.

Tonali á fjóra leiki að baki fyrir A-landslið Ítalíu og nítján aðra fyrir U19 og U21 liðin.


Athugasemdir
banner
banner
banner